Skilmálar og afhending
Upplýsingar um fyrirtækið
Kali (Ananda ehf) / Ánanaustum 15, 101 Reykjavík / / jogastudio@jogastudio.is
Kali áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.
Viðskiptavinur getur fengið vörurnar sendar í pósti eða sótt þær í Jógastúdíó í Ánanaustum 15 á fyrirfram gefnum tímum.
- Sending
Heimsending bætist við allar vörur en pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Dropp eða á næstu afhendingarstaði Dropp, eftir því hvað er valið.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Við pantanir undir 10.000 krónum bætist við 690 krónur í sendingarkostnað velji viðskiptavinur að sækja á afhendingarstaði Dropp. Velji viðskiptavinur heimsendingu með Dropp bætast við 1350 krónur í sendingarkostnað. Velji viðskiptavinur heimsendingu með Póstinum bætast við 1490 krónur í sendingarkostnað.
Frítt að sækja á afhendingarstaði Dropp fyrir pantanir yfir 10.000 kr.
-
Sækja
Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda getur afgreiðsla tekið 1-2 virka daga. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar.
Afhending pantana fer fram í Jógastúdíó í Ánanaustum 15, 101 Reykjavík. Pantanir eru afhentar á miðvikudögum milli 10.00 og 16.00.
Smelltu hér til að sjá staðsetningu í Google Maps.
Verð og verðbreytingar
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.
Ananda ehf áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.
Að skipta og skila vöru
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru í Jógastúdíó í Ánanaustum 15, 101 Reykjavík, eða sendi okkur vöruna með pósti á eigin kostnað.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðslu sé hennar krafist.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.